Lánskjaravaktin - Láttu Aurbjörgu um að vakta lánin fyrir þig og sparaðu pening og tíma með því að endurfjármagna
Aurbjörg

Fréttabréf Aurbjargar í júní

Fréttabréf Aurbjargar í júní

Góðar fréttir, ekkert nema góðar fréttir :)

Ný og bætt upphafssíða fyrir greidda áskrift !

Nýtt og betra mælaborð birtist nú viðskiptavinum okkar eftir innskráningu á greidda áskrifendavef Aurbjargar, min.aurbjorg.is. Sú slóð er upphafssíða þeirra áskrifenda sem eru í grunnáskrift Aurbjargar.

Markmið mælaborðsins er að draga saman aðalatriðin í fjármálunum þínum á einfaldan hátt. Í mælaborðinu birtist yfirlit yfir fasteignir, ökutæki og aðrar eignir ásamt virði þeirra. Einnig er hægt að skoða stöðu íbúðalána, bílalána, annara skulda og bankareikninga.

Svona getur þetta litið út:

Ný vara á teikniborði Aurbjargar !

Lánavöktun húsnæðislána er ný vara á teikniborði vöruþróunardeildarinnar okkar sem verður í boði fyrir viðskiptavini Aurbjargar í grunnáskrift.Lánavöktun gerir viðskiptavinum Aurbjargar kleift að fá sérstakar upplýsingar um breytingar lánakjara hjá lánveitendum húsnæðislána. Á mannamáli væri það þannig að við getum látið þig vita um leið og vextir breytast. 

Ný færsla á blogginu!

Þegar verið er að:

 - taka fyrsta lán til húsnæðiskaupa,

 - taka nýtt lán fyrir nýja eign,

 - endurfjármagna eldra lán,

þá leggst til lántökukostnaður sem oft er ófyrirséður. Við hjá Aurbjörgu hlóðum í einn bloggpóst til að varpa ljósi á þennan kostnað hjá stóru bönkunum þremur.

Nýtt fasteignamat fyrir árið 2025

Húsnæðis - og mannvirkjastofnun (HMS) var að uppfæra fasteignamat fyrir árið 2025.

Fasteignamat hefur meðal annar áhrif á fasteignagjöld en líka lánamöguleika. Margar lánastofnanir horfa til fasteignamats þegar verið er að reikna fasteignalán og miðað við það gætu sumir fasteignaeigendur nú verið með breytta sviðsmynd í lánamálum. Þá er kjörið að vera með góðan lánareikni 🦾

... og nýtt verðmat fyrir fasteignir hjá Aurbjörgu !

Við erum búin að uppfæra verðmat fyrir fasteignina þína. Ef þú ert í grunnáskrift, þá færðu sjálfvirka uppfærslu á verðmati fasteignanna þinna inni í þínu stjórnborði.

Aurbjörg hlaut styrk frá Rannís

Við hjá Aurbjörgu erum í skýjunum yfir því að hafa fengið úthlutaðan Vaxtar-styrk úr vorúthlutun tækniþróunarsjóðs Rannís. Þennan styrk munum við nota til að valdefla viðskiptavini okkar enn meira með spennandi vöruþróun fyrir fjármál einstaklinga..

Við erum afar þakklát og munum vanda til verka ❤️

Hlýjar kveðjur, 

Aurbjargar teymið

Aurbjörg finds opportunities in household finances
Let Aurbjörg stand guard and help you make better financial decisions.
Subscribe
Aurbjörg
Aurbjörg goal is to increase financial literacy, increase transparency and help you make more informed and better financial decisions.
Aurbjörg is owned by the financial technology company Two Birds ehf.
TwoBirdsRannisTaekniþrounarsjod
©2024 • Two Birds ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík